þriðjudagur, október 12, 2004

Áhugaverð útgáfa: Narnack

Narnack er tiltölulega ung útgáfa í New York (U.S.A.) og hefur á sínum snærum nokkra tónlistar menn og hljómsveitir. Hér er umfjöllun um nokkrar þeirra.

Aa (Big A Little a)



Aa er skipuð fimm listaspírum og er tónlist þeirra blanda af elektrónískum hávaða (a la Animal Collective, Black Dice o.fl.) og brengluðum danstöktum. Fyrsta og samnefnd breiðskífa þeirra gefur sterk fyrirheit um framhaldið.



Coachwhips



Hávært garage-band frá San Fransisco sem leitt er af John nokkrum Dwyer. Tónlist Coachwhips mætti staðsetja mitt á milli garage-banda á borð The Dirtbombs, The Gories og White Stripes og öfgahávaðbanda á borð við Pink and Brown og Lightning Bolt. John, sem upprunalega er frá Providence í Rhode Island-ríki(heimabær Arab On Radar, Black Dice, Lightning Bolt o.fl.), var einu sinni meðlimur Pink and Brown og dauðarokksbands sem hét því einstaklega skemmtilega nafni Dig Up That Body It's Alive. John gefur einnig út angurvært lo-fi undir nafninu OCS og hefur hann gefið út tvær breiðskífur, OCS 1 og OCS 2.
Nýjasta breiðskífa Coachwhips,
Banger Vs. Fuckers, er afar skemmtileg skífa. Slær öllu kommersíal bílskúrsrokki við án þess að blikka auga.




Intelligence




Tveggja manna lo-fi garage/no wave dúó frá Seattle. Minnir stundum á hrátt kántrí í anda Hank Williams og Public Image Ltd. í vondum hljómgæðum. Hljóðheimur Intelligence spannar allt frá melódísku sing-along-i til allt að því óáheyrilegs no wave-lágfitls. Boredom and Terror er eftir því sem ég best veit þeirra eina breiðskífa og var hún gefin út á geisladisk hjá Omnibus Records og gaf Narnack hana út á vínil ásamt 10 laga aukadisk.