þriðjudagur, febrúar 15, 2005

Karate snýr aftur í loftið

Útvarpsþátturinn Karate hefur fengið nýjan samastað á Xfm og er útsendingartíminn sá sami og áður, þ.e. á sunnudögum kl. 22:00. Í síðasta þætti hljómaði m.a. nýtt efni með Dead Meadow, Wolfmother, Seedy Gonzalez, Skygreen Leopards o.fl. Mæli með ítölsku sveitinni Jennifer Gentle og portúgalskri sveit sem heitir X-Wife. Í þættinum heyrðist líka í gömlu funk-bandi frá Seattle sem heitir Black on White Affair, mjög hrátt og töff. Lag með með þeim er að finna á safnplötu sem heitir Wheedless Groove og er hún nýútkomin út og var það útgáfa sem heitir Light In The Attic sem gaf út.

Ég hlakka til að heyra nýja plötu með Out Hud, hún mun bera nafnið Let Us Never Speak of it Again og hefur að geyma nokkur sungin lög (S.T.R.E.E.T. D.A.D. var að öllu leyti instrúmental).