Gott stöff !!!
Bunky - I Was Born To Be a Motorcycle
Bunky er afar áhugaverð sveit frá San Diego. Hana skipa þau Rafter Roberts (gítar og söngur) og Emily Joyce (trommur og söngur). Rafter er virtur upptökustjóri þar í borg og hefur m.a. tekið upp plötur með hljómsveitum á borð við The Rapture, Black Heart Procession, The Album Leaf, GoGoGo Airheart o.fl. Emily er einnig upptökustjóri og hefur hún tekið upp tónleikaplötur fyrir hljómsveitir eins og The Handsome Family og The Starlight Mints fyrir Emusic. Bunky hefur getið af sér orð sem ein besta tónleikasveit San Diego. Á "I Was Born To Be a Motorcycle" spila m.a. meðlimir Pinback, Rocket From The Crypt, Black Heart Procession og Raymond Raposa sem leiðir hina mögnuðu sveit Castanets.
Tónlist er poppuð og skrítin, stundum hávær og afar fjölbreytt. Ekki mjög ósvipuð hinni mikilvægu Deerhoof. Hér fyrir neðan er eitt lag með sveitinni. Ég mæli með þessu.
Chuy
The Dirty Projectors - The Getty Address
The Dirty Projectors er eins manns hljómsveit skipuð náunga sem heitir Dave Longstreth. The Getty Adress er hans fimmta breiðskífa hans og sú fjórða undir nafninu The Dirty Projectors. Fyrstu breiðskífu sína, The Graceful Fallen Mango, gaf hann út undir sínu eigin nafni. Dave er fyrrum nemi í Yale en gafst upp á náminu og hellti sér af fullum krafti í að semja og spila sína eigin tónlist árið 2001.
Eins fáránlega og það hljómar þá segir Dave plötuna vera óperu sem samin sé um Don Henley, sem var trymbill og aðal lagahöfundar soft-rokk/kántrí-sveitarinnar The Eagles. The Dirty Projectors minnir á engan hátt á The Eagles heldur á meira skylt við tónlistarmenn og hljómsveitir á borð við Björk, Matmos, Devendra Banhart, The Microphones, John Cage, Animal Collective o.s.frv. Ég er meira að segja ekki frá því að undir niðri svífi andi Prince og Gastr Del Sol, eins fáránlega og það kann að hljóma. Tónlistin er stór í sniðum (hún var samin með aðstoð 25 manns), fríkuð og falleg.
Hér eru tvö lög þessu magnaða stykki:
Finches' Song At Oceanic Parking Lot
Jolly Jolly Jolly Ego


<< Home