þriðjudagur, september 06, 2005

Karate snýr aftur og ekki að ástæðulausu


Það telst til tíðinda að maður uppfæri þessa blessuðu síðu, betra er seint en aldrei eins og máltækið segir. Ég ætla meira að segja að taka svo stórt upp í mig með því að lýsa því yfir að hér eftir verður bloggað a.m.k. einu sinni í viku og lagalistar o.fl. tengt þáttunum verður í hverju bloggi. Jamm, jamm..

Næstkomandi laugardag kemur fram á tónleikum í Iðnó hin magnaða hip-hop-sveit Dälek og spilar ásamt nokkrum af
skemmtilegri sveitum landans, það eru Ghostigital, Forgotten Lores, Skakkamanage (sem á eitt besta íslenska lag ársins, OFC's) og Donna Mess.

Dälek (borið fram dialect) er frá Newark í New Jersey-ríki í Bandaríkjunum. Sögu þessarar merku sveitar má rekja aftur til ársins 1998 þegar Will Brooks (Dälek) og Alap Momin (Oktopus) hittust í William Patterson háskólanum í New Jersey og komust þá að því að þeir höfðu sameiginlegan áhuga á framsækinni nútímatónlist, hvort sem það var hiphop, djass, rokk eða klassík. Til þess að segja langa sögu stutta þá gáfust þeir upp á náminu og helltu sér að fullum krafti í tónlistarsköpun og í uppbyggingu á hljóðveri þeirra Sweetwood Sound.



Fyrsta skífa þeirra, Negro, Necro, Nekros, leit dagsins ljós sama ár og er óhætt að segja að á
henni hafi kveðið við nýstárlegan hljóm sem áður hefur tíðkast í hiphop-tónlist. Á plötunni
notaðist sveitin við “sömpl” frá hljómsveitum á borð við My Bloody Valentine, Faust og Velvet
Underground og tónskáldum á borð við Penderecki og Glenn Branca (oft kallaður lærimeistari
Sonic Youth). Stuttu eftir gekk til liðs við þá félaga “scratch-arinn” Hsi-Chang Lin (Still) sem
fær hin ótrúlegustu hljóð út úr tækjabúnaði sínum og hefur honum verið líkt við ekki ómerkari
tónlistarmenn en Grandmaster Flash, Jimi Hendrix og Merzbow.



Til marks um sérstöðu Dälek þá hefur hún farið í tónleikareisur með fjölbreyttum hóp hljómsveita
og tónlistarmanna sem ekki eru endilega hiphop-sveitir, þetta eru t.a.m. The Roots, De La Soul,
The Melvins, Grandmaster Flash, ISIS, Prince Paul, Dillinger Escape Plan, Tomahawk,
DJ Spooky o.s.frv.. Hljómsveitin hefur einnig gefið út samstarfsplötur með
framúrsstefnudjassistunum William Hooker og Ravish Momin, raftónlistarmönnunum Kid 606
og Merzbow og þýsku súrkálsrokkurunum í Faust.



Þeir sem urðu vitni af Anticon-tónleikum
Karate fyrr í sumar ættu ekki að láta þessa tónleika
fram hjá sér fara.



Hér er nokkur tóndæmi af þremur skífum Dälek:

Negro, Necro, Necros











Swollen Tounge Bums





From Filthy Tounges of Gods and Griots













Spiritual Healing

Classical Homicide



Abscence












Distorted Prose