Mount Eerie og Woelv á Íslandi
::: MOUNT EERIE (áður The Microphones) og WOELV :::
Það má með sanni segja að bandaríski tónlistarmaðurinn Phil Elverum hafi komið víða við þrátt fyrir ungan aldur. Flestir þekkja hann líklega undir nafni The Microphones en þar fyrir utan hefur hann verið meðlimur í böndum á borð við D+ og Old Time Relijun samfara því að taka upp plötur listamanna, sem líkt og Elvrum eru á mála hjá K Records í Olympiu, Washington.
Eftir 4 breiðskífur, sem allar hafa verið lofaðar í bak og fyrir, ákvað hann hins vegar að loka Microphones kaflanum og hefja nýjan er hann kennir við Mount Eerie. Nafnið er einmitt dregið af heiti síðustu plötu The Microphones og má því segja að þar mætist þessi 2 aukasjálf, sem í fljótu bragði virðast ekki svo mjög frábrugðin hvoru öðru. Þar sem engin eiginlega breiðskífa hefur litið dagsins ljós síðan er þó erfitt að segja hvort róttækra stefnubreytinga sé að vænta og því ætti að vera athyglisvert að fá smá forsmekk á tónleikum Mount Eerie hér á landi nú síðar í mánuðinum. Með í för er eiginkona Elverum, Geneviève Castrée, sem kallar sig Woelv. Það ætti enginn að missa af tækifærinu til að sjá einn athyglisverðasta tónlistarmann sinnar kynslóðar.
Þó slíkar fullyrðingar séu oft ofnotaðar eru það engar ýkjur í tilfelli Phil Elvrum eins og þeir sem hlýtt hafa á plötur hans geta vitnað um. Hæstu hæðum náði hann líklega á ‘The Glow pt.2’, þar sem lög, flutningur og einstakur hljóðheimur Elvrum haldast í hendur við að skapa eitt af helstu meistaraverkum óháða geirans sem komið hafa undanfarin ár. Platan prýddi enda árslista margra gagnrýnenda og sem dæmi má nefna að hið kröfuharða og stundum uppskrúfaða vefrit Pitchforkmedia valdi hana plötu ársins 2001.
Tónleikar Mount Eerie verða fimm talsins (þeir fyrstu voru í MH í hádeginu í dag og vöktu þeir bæði lukku og gott umtal).
Hér er tónleikadagskráin í öllu sínu veldi:
Fimmtudagur 17. mars - Kvennaskólinn í Reykjavík
Fimmtudagur 17. mars - Frumleikhúsið í Keflavík ásamt Þóri. 500 kr. inn.
Föstudagur 18. mars - Smekkleysa Plötubúð ásamt Brite Light. Frítt.
Laugardagur 19. mars - KlinK & BanK ásamt Þóri og Gavin Portland. 500 kr. inn.
Tóndæmi af The Glow Pt. Two
I Felt Your Shape
The Moon

